„Andlit Afríku er mögnuð bók og ég stend mig að því að fletta bókinni aftur og aftur, það er aftan á mótorhjólinu hjá Kristjáni og inn í frásögnina. Þetta er holl lesning og eftir situr þakklæti og umhugsun um öll þau lífsgæði sem við búum við hér á Íslandi.“

Ragga Gísla

"Það er ljúf upplifun að fylgja Kristjáni á þessu ferðalagi. Einlæg nálgun og frásögn hans af framandi slóðum og menningu er bæði fræðandi og falleg".

Sóli Hólm

„Mér fannst svo gaman að fara í ferðalag úr rúminu mínu til Afríku. Öll þessi andlit gerðu mig svo glaða. Það er ekki öllum gefið að ferðast um heiminn og hitta svona marga og gott til þess að vita að þeir sem þá geta, deilir gleðinni með öðrum. Mæli með - allur ágóði fer til góðra mála!“

Saga Garðars

"Aldrei hætta að þora"

Gísli, pabbi Kristjáns

Einn daginn var Kristjáni boðið að fara í mótorhjólaferð með góðvinum sínum um Vestfirðina. Þetta var hans fyrsta mótorhjólaferð og vissi ekki við hverju hann átti að búast. Hann heillaðist að upplifuninni við þennan ferðamáta, allt frelsið sem því fylgdi og að sjá nærumhverfið í öðru ljósi. Hann heillaðist í raun svo mikið að tveimur árum síðar, 58 ára gamall, er hann lagður af stað í kringum hnöttinn á mótorhjóli með myndavél og opinn huga. Á 10 mánuðum nýju upplifði hann frá fyrstu hendi hvernig fólk lifði við um heiminn og fékk að sjá heiminn í ljósi.

Hringfarinn heimildamynd

Brot úr heimildamynd sem RÚV sýndi í nóvember 2018.

„Ég hélt að besta leiðin til að skoða heiminn væri með myndavél en sé núna að mótorhjólið var það sem vantaði. Kristján kemst ekki bara yfir gríðarlega stórt landsvæði, og króka og kima heimsálfu sem fáir jarðarbúar fá að berja augum, heldur kemst hann í nánd við fólk sem býr þar. Með sinni tengingu við þennan ólíka menningarheim nær Kristján að sýna hinum, sem ólíklega gerumst svo þorin að leika þetta ferðalag eftir, hversu spennandi heimurinn er ef við þorum að bregða út af sporinu.“

Snorri Björns

"Það breyttist eitthvað innra með mér í þessari ferð. Ég öðlaðist auðmýkt gagnvart lífinu"

Kristján Gíslason, Renna í gegn

"Einnig var fallegt að lesa um allan kærleikann sem mætti Kristjáni alls staðar og að fólk sé alltaf gott og hjálplegt"

Guðbjörg Andrésdóttir

Virkni QR í Andlit Afríku bók

Sögustund með sjálfum Hringfaranum

Kristján Hringfari heldur reglulega erindi um ferð sína umhverfis jörðina. Þetta er ekki saga mótorhjólakappa á þeysireið um veröldina heldur mannlífsrannsóknir ferðalangs í hnattferð á mótorhjóli. Kristján er fyrstur Íslendinga til að fara einn á farartæki umhverfis jörðina.

Hægt er að bóka fyrirlestur hjá Kristjáni:
kristjan.gisla@gmail.com

Bók sem fer allan hringinn

Síðast úthlutaði Styrktarsjóður Hringfarans 5 milljónir króna til verkefnisins Óminni sem þau Kristján Ernir Björgvinsson, Sólrún Freyja Sein og Eyþór Gunnlaugsson stóðu fyrir. Óminni er þriggja þátta forvarnarheimildaþáttur um fíkniefnavandann á Íslandi sem sýndur var á Stöð 2 og Vísi. Hægt er að sjá stiklu úr þáttunum hér að neðan.

"Hringfarinn er ferðasaga hans sem hrífur þig með sér. Það er sem þú ert beinlínis farþegi á hjólinu"

Skúli Björnsson